You'll have to speak up I'm wearing a towel
10.03.2008 10:08:13 / harpas

Rótgróin

Það er svo bjart úti.  Hafið þið litið út?  Það er varla hægt að hafa augun opin það er svo bjart.  Það er dimmt hérna inni, hjá mér.  Ég er litla veran sem situr móts skjánum og þykist vera að tjá sig á heimspekilegan hátt.  Litla veran er svöng.  Litlu verunni er kalt á fótunum.  Litla veran þarf að fara uppí skóla á eftir því á morgun þarf litla veran að fara til læknis.  Litla veran fær kannski sprautu.  Litla veran mun öskra af öllu afli í myrkrinu en það heyrir enginn í henni.  Hvar eru allir?  Hjálparóp sem fyrnast vegna hlutleysis.  Að lokum hættir hún að reyna. Ég get ekki beðið eftir að komast af þessu skeri.

HS


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.03.2008 15:14:43 / harpas

Peningagráðugu andskotar

Lífið er bjart á ný, sólin er að gera sig heimakomna á litla skerinu okkar og myrkrið berst fyrir tilveru sinni.  En myrkrið tapar alltaf á þessum tíma árs.  Allt sem var falið í skuggunum kemur í ljós.  Kannski var það betra falið.  Enginn vill sjá hið ljóta í heiminum. 

HS

P.S. Bensínið er komið uppí 140 krónur.  Ég er hætt að keyra.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 20:07:37 / harpas

Hola

Jæja ég á núna nóg af fötum.  Ég fór til rvk um síðustu helgi og fyllti fataskápinn, nýja fataskápinn.  Keypti meira að segja óvart boli sem þarf að handþvo.  Úps.  Jæja sé ykkur.  Og eitt í viðbót skráið ykkur á facebook og verðið vinir mínir:) 

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 19:47:43 / harpas

Ég er laugardagur

Í dag þreif ég herbergið okkar og breytti smá.  Rakel og Sóley eru báðar fyrir austan og Óli er enn í Bretlandi.  Ég er ein heima en ég fer kannski á djammið uppúr miðnætti því Heiðdís og Kristján eru á staffadjammi þangað til þá.  Og svo eru allar sjónvarpstöðvar að setja met í leiðinlegri dagskrá.  Hillary Duff er algjört rugl.  Duff er ekki ættarnafn heldur bjór.  I mean ghaaass.  Ég gæti reyndar farið að skúra leikskólann en ég vil frekar gera það í dagsbirtu ef það er mögulegt.  Jæja ég nenni þessu ekki lengur.  Adíos

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 21:53:22 / harpas

The last day of Christmas

Í dag er þrettándinn en á morgun næ ég í stundatöfluna og á hinn byrjar skólinn. Ég get ekki beðið! Mér leiðist svo mikið, ég er ein heima og hef ekkert að gera nema laga til og ég vil að sjálfsögðu ekki gera það. Ég var að skoða íbúðir á netinu en sá ekkert spes. Ég gaf fullt af fötum í rauða krossinn og henti fullt af dóti sem við notum ekki lengur. Mér tókst að tæma heila hillu í geymslunni. En annað ekki fara á golden compass hún er ekki skemmtileg og íslenskan (eða hvað sem þetta var) var ekki góð. Ég sofnaði næstum því. Jæja ég ætla að skoða eitthvað skemmtilegt. Mæli með I am legend með Will Smith hún er rosaleg.

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 13:14:53 / harpas

The very last day

Í dag er síðasti dagur ársins 2007 og á morgun byrjar nýtt ár, ár breytinga, ár endaloka, ár skuldbindinga. Á morgun byrjar árið sem ég hætti að vera framhaldskólanemi, allavega í bili, útskrift, ferðalög, alvöru vinna. Ég veit ekki hvort ég sé tilbúin. Mér hefur aldrei fundist eins gaman og í skólanum, nema kannski á jólunum. Ég er heldur ekki viss um að ég sé tilbúin í svona "átta til fjögur" vinnu. Það er kannski bara partur af því að fullorðnast. GLEÐILEGT NÝTT ÁR!

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 22:05:11 / harpas

Like anyone on earth cares...

Á morgun er desember. Fullt af fólki er búið að skreyta meira að segja ég. Ég þarf reyndar að skreyta meira en ég geri það seinna. Ég er búin að kaupa og pakka inn fullt af jólagjöfum og ég er byrjuð að lesa fyrir prófin. Ég var að reyna að hafa samband við Rakel því Psycho er í sjónvarpinu en hún svarar aldrei í símann sinn. Ég horfi þá bara á hana ein. Kannski sé ég sturtuatriðið. Ég ætti kannski að poppa... jæja ég tékka á ykkur fyrir jólin :) bæbæ

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 19:31:38 / harpas

Nú er frost...

Klukkan er 12:13 á hádegi hér á Húsavík við Skjálfanda og ég er að blogga í reikningsbók. Rafmagnið er farið og ekkert hægt að gera. Ég get ekki hlaðið tölvuna og ekki eldað neinn mat. Það er ekki hægt að fara í sturtu því það er ekki hægt að hita vatnið. Það er ekki hægt að sjóða kaffi og við vitum ekki hvort við komumst inn í Úrval því dyrnar eru rafrænar. Sjónvarpið virkar ekki einu sinni! Við erum samt búnar að dunda okkur við að skoða gamlar myndir og Þórný er að gera klárt fyrir púsl. Blessó Klukkan er 14:09 og enn er rafmagnslaust og enn er ég að blogga á pappír. Við reyndum að kaupa okkur eitthvað að borða en allt var lokað. Adíos. Klukkan er 19:31 og rafmagnið er komið aftur. Við fórum til ömmu í rafmagnsleysinu og komumst að því að Shell var opið því það er víst inní aukarafmagnssvæði sjúkrahússins. Við erum nýbúin að borða góða gæs og veðrið er orðið miklu betra. Þetta var samt svo skrítið. Það var bara ekki hægt að gera neitt nema lesa og púsla. Jæja þetta er allavega búið:) Hasta luego amigos:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 15:25:00 / harpas

White people should not play sports in the first place

HALLÓ! Ég er komin heim frá Mallorca. Ég keypti alskonar og sá alskonar. Ég brann líka rosalega kringum sundbrókina mína en það var ekki gaman. Við kynntumst Alberto, Paco, Tony og gellunum í lobbýinu. En núna ligg ég bara upp í rúmi og teikna munstur fyrir tauþrykk. Bróðir hans Óla keypti sér íbúð og Heiðdís er ólétt. Það er allt að gerast hér á Fróni:) Bæjó

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 19:02:10 / harpas

Stupid TV. Be more funny!

Jæja nú er skólinn löngu byrjaður, ég er búin að eiga afmæli, Óli er að verða búin að vinna heila viku straight, og svo framvegis... Við erum að fara út eftir tvær vikur og allir byrjaðir að hlakka rosa til. Sóley fór að ná í miðana okkar, svo þegar hún skoðaði þá stóð á þeim að ég væri Mister Harpa Stefánsdóttir. Hún skrapp aftur niðureftir til að athuga hvort þetta mætti vera svona og konan sagði já! Mér er alveg sama hvort þetta má vera svona eða ekki. Ég vil ekki vera neinn mister! En, jæja, ég er búin að kaupa mér bakklóru og hún er æði. Virkar fullkomlega. iAdiós amigos!

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 18:27:25 / harpas

Smá könnun

1. Hver ert þú? 2. Erum við vinir? 3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig? 4. Ertu hrifinn af mér? 5. Langar þig að kyssa mig? 6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það. 7. Lýstu mér í einu orði. 8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst? 9. Lýst þér ennþá þannig á mig? 10. Hvað minnir þig á mig? 11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera? 12. Hversu vel þekkiru mig? 13. Hvenær sástu mig síðast? 14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það? 15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 21:34:03 / harpas

Skólinn er alveg að byrja

Við skulum alveg átta okkur á einu. Ég hef ekki bloggað síðan í apríl. Er búið að vera svona brjálað að gera? Kannski...Ojæja ég blogga aftur þegar ég hef eitthvað að segja. Ég mæli með Rush Hour 3 mér finnst hún best til þessa.

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 13:06:51 / harpas

Flækingsköttur á ferð í limmósíu

Horfðuð þið á sjónvarpið í gær? Mér var litið á kastljósið þar sem ég sat móts tengdamömmu minni og reif í mig dýrindis fajitas rétt. Þar sá ég mjög svo undarlegar verur syngja mjög svo skemmtilegt lag og ég hugsaði með mér, rosalega kannast ég við þessar verur. Engin furða þetta var hún Margrét frænka mín, Oddur karlinn hennar og Sigurður fyrrverandi bæjavinnustjórinn minn. Svo var sonur Önnu blokkflautukennara þarna með bassa. En snúum okkur að öðru. Ég ligg nú uppí rúmmi og bíð eftir að hann Ólafur minn nenni að koma með mér niður í bæ til þess eins að komast hjá rotnun í kjallaraholunni okkar. Jæja bless:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 13:07:24 / harpas

Gleðilega páska:)

Klukkan er eitt á páskadegi og ég er enn í náttfötunum. Ég er að spá í að kíkja út. Þá ekki fara út heldur bara kíkja út um gluggann. Ég er ekki enn búin að ákveða hvort ég ætli á greifana en ég held að sjallinn sé út úr myndinni. Ég nenni ekki að keyra í kvöld. Ég ætla bara að liggja hér þangað til mamma skipar mér að þvo mér og fara í hrein föt. Maður á að vera fínn í páskadagskvöldmat. Jæja heyrumst;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 19:02:36 / harpas

Why don't you like me?

Ég er í letilífi á Húsavík. Er að spá hvort ég á að fara á greifana eða á Palla í sjallanum. Þarf að spyrja Sóleyju hvað hún vill gera. Annars ætla ég helst ekki að gera neitt. Jú, baka pizzu handa honum Óla mínum. En það má bíða betri tíma:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 14801